![Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins](https://alfredprod.imgix.net/logo/71d47ba3-c988-444a-8cd5-7318f836ae9f.png?w=256&q=75&auto=format)
![Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins](https://alfredprod.imgix.net/cover/0f3fa332-322a-429b-8626-df4dc0df1b5c.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæslan Efstleiti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Efstaleiti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.
Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Megin starfssvið er skólahjúkrun og opin og bókuð móttaka
- Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
- Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Heilbrigðisstofnun Suðurlands](https://alfredprod.imgix.net/logo/2efd81fb-9266-401a-a3fd-a9c3e3a70995.png?w=256&q=75&auto=format)

![Vinnuvernd ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/e5a49fb0-20ee-4e11-89e2-be918b9476c4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Eir hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/logo/9783af25-9630-4950-8698-8feeb86bcd6d.png?w=256&q=75&auto=format)
![Reykjavíkurborg - Velferðarsvið](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-8b5068b1-2da0-4395-b0ee-b51385a40264.png?w=256&q=75&auto=format)