

Aðstoðarmaður deildarstjóra á taugalækningadeild
Hefur þú reynslu af skipulagi og umbótastarfi og nýtur þess að vinna með fólki að sameiginlegum markmiðum?
Við sækjumst eftir einstaklingi sem hefur yfirsýn, frumkvæði og brennur fyrir jákvæðri vinnustaðamenningu. Starf aðstoðarmanns deildarstjóra er lifandi og fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er eins. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á verkefnastjórnun og felur í sér skipulagslega ábyrgð, mönnun og þátttöku í umbótaverkefnum, auk víðtækra samskipta við starfsfólk, stoðþjónustur og stjórnendur. Viðkomandi mun vinna náið með deildarstjóra og verður partur af stjórnendateymi deildar.
Taugalækningadeild er staðsett á Landspítalanum í Fossvogi. Áhersla er lögð á nærgætin samskipti, mannúðlega nálgun og jákvætt framlag hvers og eins. Við vinnum saman af heilum hug og fögnum nýjum röddum, sjónarhornum og hugmyndum.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Ragnheiði Sjöfn, deildarstjóra.































































