

Yfirlæknir sérnámslækna á skurðlækningaþjónustu
Starf yfirlæknis sérnámslækna á skurðlækningaþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð.
Starfið felst í því að vera yfirlæknir sérnámslækna, annara námslækna og lækna með lækningaleyfi sem starfa á sérgreinum skurðlækninga á Landspítala. Ásamt því að bera ábyrgð á skipulagi klínískrar vaktaþjónsutu ofan nefndra lækna fyrir sérgreinar skurðlækninga. Næsti yfirmaður er forstöðulæknir sérgreina skurðlækninga.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu af utanumhaldi náms og lækna í framhaldssérnámi samhliða klínískri vinnu, hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, vinnuskipulag, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við forstöðulækni, framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.
Starfshlutfall er 50% og veitist starfið frá 1. janúar 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

























































