Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérfræðilæknir á svefndeild Landspítala

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við svefndeild Landspítala. Um fullt starf er að ræða en lægra starfshlutfall getur þó komið til greina. Upphaf starfa er 1. desember 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Meginviðfangsefni deildarinnar er greining og meðferð sjúklinga með svefntengda sjúkdóma. Sérfræðilæknar í svefnlækningum, lungnalækningum, taugalækningum, geðlækningum, háls-nef og eyrnalækningum eða öðrum sérgreinum sem hafa þekkingu á túlkun og úrlestri svefnrannsókna og greiningu og meðferð svefntengdra sjúkdóma koma til greina.

Megin kunnáttusvið og hæfni sem þarf til starfsins eru túlkun polysomnografiurannsókna og vökurannsókna (e. vigilance studies) sem og greining og meðferð margra mismunandi svefnraskana svo sem svefntengdra öndunarraskana, dægursveiflusjúkdóma, hypersomniu- og parasomniusjúkdóma auk insomniu, svefntengdra hreyfitruflana og fleira.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í viðeigandi sérgrein
Þekking, reynsla og áhugi á svefnháðum sjúkdómum
Reynsla af vinnu í svefnrannsóknareiningu
Þekking og reynsla af klínísku starfi
Góðir samskiptahæfileikar
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Úrlestur svefnrannsókna, þar með talið polysomnografiu, og upplýsingagjöf til sjúklinga
Ráðgjöf og meðferð við sjúkdómum sem tengjast svefni hjá inniliggjandi- og göngudeildarsjúklingum
Klínískt eftirlit með meðferð
Innstilling svefnöndunartækja og eftirlit með meðferð, hjá einstaklingum með grímumeðferð sem og meðferð um barkarauf
Þátttaka í þróun svefnrannsóknarferla á landsvísu
Þjónusta göngudeildarsjúklinga með flókna sjúkdómsmynd
Þátttaka í kennslu heilbrigðisstarfsmanna
Þátttaka í rannsóknarstarfi
Þátttaka í vöktum ræðst af sérgrein
Auglýsing birt9. september 2025
Umsóknarfrestur15. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (28)
Landspítali
Klínískur yfirlæknir í brjóstholsskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar
Landspítali
Landspítali
Félagsráðgjafi í félagsráðgjafaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í geðlækningum í öldrunargeðteymi
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri á hjartarannsóknarstofu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur í hjúkrun - Dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur í hjúkrun barna - Göngudeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur eða lífeindafræðingur við hjartaómun á hjartarannsóknarstofu
Landspítali
Landspítali
Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur á hjartarannsóknarstofu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á geðgjörgæslu 32C
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í bæklununarskurðlækningum barna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kvenlækningadeild 21A
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali