

Þroskaþjálfi - Leikskólinn Bjarkalundur
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir sérkennara eða þroskaþjálfa í 100% starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru: Snemmtæk íhlutun í málþroska ungra barna ásamt læsi, flæði og hreyfingu. Unnið er samkvæmt SMT, markmið SMT gengur m.a. út á að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Þau samskipti sem gilda innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk sem leggur áherslu á fagmennsku.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning
- Vinnur í teymi með kennurum að þeim verkefnum sem sérkennslustjóri felur starfsmanni
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
- Vinna að gerð einstaklingsnámskrár og fylgja henni eftir
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á svið þroskaþjálfunar og starfsleyfi til að vinna sem slíkur (starfsleyfi fylgi umsókn)
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Góð íslenskukunátta skilyrði
- Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) æskileg
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir um starfið veita Telma Ýr Friðriksdóttir, leikskólastjóri ([email protected]) í síma: 555-4941.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2025
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.



















































