

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. - 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur einnig ríka áherslu á umhverfismál.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna umsjónarkennslu á yngsta stigi.
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Áhugi og/eða reynsla af umsjónarkennslu
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, [email protected] og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri; [email protected].
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http:www.oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2025
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.












































