

Sumarstörf fyrir ungmenni fædd 2007 og eldri
Á sumrin er Vinnuskóli Hafnarfjarðar stærsta starfstöðin í bænum. Starf í skólanum gefur einstaka möguleika á því að njóta útiveru og eiga þátt í að prýða bæjarlandið í samvinnu við ungt fólk. Vinnuskólinn starfar eftir áherslum Grænfána og er skóli án aðgreiningar. Umsækjendur skulu vera á 18 ári eða eldri (fædd 2007 eða eldri).
Dæmi um helstu verkefni og ábyrgð:
- Sláttur og hirðing beða, hreinsun opinna svæða
- Ýmist viðhald
- Leiðsögn á leikjanámskeiðum
- Stuðningur við nemendur eða aðstoð í fjölmennum hópum
- Aðstoða flokkstjóra við daglega stjórnun
- Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í hópnum
Hæfniskröfur:
- Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Samskiptafærni og hæfni til að vera nemendum góð fyrirmynd
- Þekking á starfi Vinnuskólans eða önnur reynsla af starfi með börnum eða unglingum er kostur
- Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
Eftirfarandi störf eru í boði í sumar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdum hvaða starfi þið óskið helst eftir.
Aðstoðarflokkstjóri
Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa við aðstoðarflokkstjórn ýmissa hópa vinnuskólans. Hópar sumarsins geta verið almennir hópar við grunnskóla, jafningjafræðsluhópur, listahópur og morgunhópur.
Aðstoðarflokkstjórar hefja störf 4. júní og geta unnið samtals 208 tíma.
Félög (íþróttafélög og fleira)
Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa hjá félögum í Hafnarfirði. Starfstímabilið er frá 1. júní - 15. ágúst. Flokkstjórar hjá félögum geta unnið samtals 208 tíma. Um er að ræða blöndu af inni- og útistörfum ýmist við garðyrkju eða leikjanámskeið.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdum hjá hvaða félagi umsækjandi óskar eftir sumarstarfi.
Umhverfishópar
Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa í umhverfishópa. Hóparnir sjá m.a. um gróðursetningu, viðhald blómabeða, slátt og viðhalds- og umhirðuverkefni í bænum ásamt öðrum tilfallandi verkefnum. Starfstímabilið er allt sumarið frá lok maí fram í ágúst.
Pokabíll
Auglýst er eftir starfsfólki á pokabíl. Viðkomandi þarf að hafa bílpróf á beinskiptan bíl en starfið snýst að mestu leyti um að keyra eftir pokum sem hópar Vinnuskólans skilja eftir og tæma þá.
Lager
Auglýst er eftir starfsfólki á lager Vinnuskólans. Viðkomandi þarf að hafa bílpróf á beinskiptan bíl, almennt verkvit og sjálfstæð vinnubrögð. Starfið er mjög fjölbreytt og felur í sér umsjón með verkfæralager Vinnuskólans ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Hafnarborg
Auglýst er eftir starfsmönnum til sumarstarfa við aðstoð á sumarnámskeiðum barna og afleysingu í móttöku. Vinnutími er breytilegur; frá kl. 8:30-15:30 eða frá kl. 10:00-17:30. Starfstímabilið er frá síðari hluta maí og fram í ágúst.
Helstu verkefni: Viðkomandi sinnir safngæslu, aðstoð á myndlistar- og tónlistar námskeiðum, gæslu á tónleikum og öðrum viðburðum auk tilfallandi verkefna.
Hæfniskröfur: Umsækjandi þarf að vera jákvæður, skipulagður og geta lagað sig að aðstæðum, kostur ef viðkomandi hefur reynslu af vinnu með börnum.
Bókasafn Hafnarfjarðar
Auglýst er eftir starfsmanni í afgreiðslu hjá Bókasafni Hafnarfjarðar. Um er að ræða almenna þjónustu við gesti, uppröðun og þrifum á gögnum, þátttöku í fjölskyldustundum fyrir börn ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Almenn umsókn í ýmis störf
Auglýst er eftir starfsfólki í sumar í ýmis störf hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Störfin eru ýmist inni eða úti.
Umsóknafrestur er til og með 1. apríl nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Tinna Dahl Christiansen, rekstrarstjóri, í gegnum tölvupóst [email protected]
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.









































