

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hvammur
Leikskólinn Hvammur leitar að sérkennslustjóra í 100% starf.
Hvammur er 6 deilda leikskóli á skjólsælum og fallegum stað við Staðarhvamm 23 í Hafnarfirði, rétt ofan við Suðurbæjarlaug.
Einkunnarorð leikskólans eru jákvæð samskipti, jafnrétti og vinátta.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að bera ábyrgð á og stjórna skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í samstarfi við aðra stjórnendur leikskólans
- Að vera faglegur umsjónaraðili sérkennslu í leikskólanum, annast ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans og upplýsingagjöf til foreldra
- Að hafa umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu
- Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni
- Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
- Sinnir sérkennslu barna og barnahópa með íhlutun
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun (M.ed) í sérkennslufræðum æskileg
- Reynsla af vinnu við sérkennslu
- Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
- Færni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Reynsla af að vinna í teymum
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða þroskaþjálfa með starfsréttindi sem slíkur sem hefur reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Edda Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 2.október 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska


























