Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Húsasmíðameistari – Umhverfis- og skipulagssvið

Umhverfis- og skipulagssvið óskar eftir að ráða starfsmann í starf húsasmiðameistara í Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar. Þjónustumiðstöðin sér um umhirðu á bæjarlandinu og um margvíslega þjónustu og framkvæmdir fyrir bæinn, stofnanir og íbúa. Í Þjónustumiðstöð eru 20 50 stöðugildi. Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón, eftirlit, viðhald og viðgerðir á leiktækjum á leikvöllum bæjarins.
  • Þáttaka í Almennum rekstur á trésmíðaverksæði hvað varðar að öll tæki séu í lagi og öryggismál höfð í öndvegi
  • Kemur að umsjón, eftirliti, viðhaldi og viðgerðum á timburverki á opnum svæðum svo sem girðingum, útibekkjum, göngubrúm, tröppum, pöllum, leiktækjum o.fl.
  • Ýmis nýsmíði á opnum svæðum, á opnum leikvöllum og á stofnanalóðum.
  • Gerir verðkannanir og leitar eftir tilboðum í efni frá birgjum vegna ýmissa verkefna í umsjón viðkomandi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistarabréf í húsasmíði
  • Almenn og góð reynsla af trésmíðavinnu eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Almenn, góð tölvukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um störfin veita Hafsteinn Viktorsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar í gegnum tölvupóst:[email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 25.09.2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur25. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar