Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Matráður - Heilsuleikskólinn Hamravellir

Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan matráð í fullt starf.

Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.

Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan. Gildi leikskólans eru leikur og umhyggja.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast matargerð í mötuneyti leikskólans
  • Sér um innkaup fyrir mötuneyti leikskólans
  • Eldar samkvæmt sameiginlegum matseðlum leikskóla Hafnarfjarðar
  • Annast dagleg þrif eldhúss
  • Hefur umsjón með tækjum og búnaði í eldhúsi
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Námskeið og/eða styttri námsleiðir á sviði matreiðslu er skilyrði
  • Reynsla af starfi í eldhúsi/mötuneyti skilyrði
  • Gerð er krafa um marktæka og góða reynslu á sviði matreiðslu
  • Góð þekking á næringarfræði og rekstri mötuneyta
  • Áhugi á heilbrigðu mataræði og vilji til að þróa matseðil í samvinnu við aðra
  • Sjálfstæði, þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Góð almenn tölvuþekking
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur í leikskóla
  • Stuðningur til menntunar

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, [email protected] eða í síma 424-4640 eða Stephen James Midgley, aðstoðarleikskólastjóri, [email protected].

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur11. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hvannavellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar