
Kópasteinn
Leikskólinn Kópasteini er fimm deilda leikskóli í tveimur húsum með 98 börn á aldrinum 1-5 ára á aldursskiptum deildum. Skólinn opnar kl. 7:30 og lokar kl. 16.30. Í starfinu er lögð áhersla á sjálfssprottinn leik í allri sinni fjölbreytni, lífsleikni, tónlist og málrækt.
Leikskólinn Kópasteinn hóf starfsemi árið 1964 og er fyrsti leikskólinn í Kópavogi. Kópasteinn stendur í ákaflega fögru umhverfi í hjarta Kópavogs við Borgarholtið. Kópavogskirkjan er á hæðinni fyrir ofan okkur, Listasafn Gerðar Helgadóttur blasir við og Salurinn. Þá er Borgarholtið hér allt í kring. Börnin þurfa því ekki að fara langt til að upplifa fagurt útsýni, fallegar byggingar og menningu. Vettvangsferðir eru tíðar í nærliggjandi stofnanir og nánasta umhverfi.
Börnin fara í vinnustundir í tónlist, skapandi starfi, málrækt og fleiru. Í sjálfssprottna leiknum er notað valkerfi en þá er fjölbreyttur efniviður í boði í frjálsum leiktíma barnanna. Samverustundir eru daglega inni á öllum deildum. Þar er lesið og sungið og hin ýmsu mál rædd í barnahópnum.
Endurvinnsla og endurnýting er samofin starfinu. Umhverfisfræðsla er stór þáttur af starfinu, á vorin og haustin er lögð áhersla á að vinna með náttúruna í víðum skilningi. Við sáum fyrir ýmsum jurtum, setjum niður kartöflur og höldum sérstaka Umhverfisdaga í skólanum.
Fjölmenning er allnokkur við skólann og við fögnum henni í daglegu starfi.

Starfsmaður í eldhús
Leikskólinn Kópasteinn óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í tímabundið starf vegna afleysinga, um er að ræða 100% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Starfið er laust til 01.01 2027
Kópasteinn tók til starfa 1964, í skólanum eru 98 börn á fimm deildum og er húsnæði skólans í tveimur byggingum. Starfað er eftir Aðalnámskrá leikskóla með áherslu á lífsleikni, tónlist og málrækt. Gaman saman eru einkunnarorð skólans og endurspeglar það starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sér um þrif á eldhúsi samkvæmt Gámes þrifaáætlun - gólfþrif undanskilinn.
- Sér um þvotta og frágang. Heldur þvottahúsi og vélum snyrtilegum.
- Sér um uppvask.
- Heldur kaffistofu snyrtilegri.
- Hefur góða samvinnu við allar deildir leikskólans jafnt börn sem starfsfólk.
- Aðstoðar í þeim verkefnum sem til falla í eldhúsi s.s. að færa upp matinn, sjá um meðlæti, setja á vagna og fleira.
- Tekur fullan þátt í matseld þegar mikið er að gera.
- Sinnir öðrum þeim störfum sem yfirmaður felur honum.
- Í forföllum matráðs tekur viðkomandi upp starfslýsingu matráðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla af eldhússtörfum og matreiðslu.
- Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Snyrtimennska.
- Áhugasemi og ábyrgðarkennd.
- Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi
Í Kópavogi er er hluti af vinnustyttingu notað í vetrar-, jóla- og páskaleyfi.
Frítt í sund.
Auglýsing birt25. ágúst 2026
Umsóknarfrestur3. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hábraut 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsfólk í eldhús óskast
Sjávargrillið

Kokkar/ aðstoð í eldhúsi/ Nemar
Matarkjallarinn

Kjötvinnsla - framtíðarstarf
Kjötkompaní ehf.

Matreiðslumaður/Chef
Bastard Brew and Food

Starfsfólk í matvælavinnslu
Fiskur ehf

Glerárskóli: Aðstoðarmatráður
Akureyri

Aðstoðarmaður í eldhús - Hótel Grímsborgir
Hótel Grímsborgir

Viltu dansa og djúsa með okkur?
Lemon

Viltu grilla með okkur?
Hagavagninn

Afgreiðsla/Grillari
Holtanesti

Matreiðslumaður / Chef
ION Adventure Hotel

Crêpes gerð - Akureyri
Sykurverk Café