

Leikskólakennari og/eða leiðbeinandi í 100% stöðu
Leikskólinn Álfaborg leitar að leikskólakennara í 100% stöðu. Um er að ræða þriggja deilda leikskóla á Svalbarðseyri þar sem flottur hópur vinnur. Ráðið verður í starfið frá 1. október eða eftir samkomulagi.
Við leitum að jákvæðum og samviskusömum einstaklingi í 100% stöðu sem er tilbúin til að leggja sig fram við að vinna með öðrum og er nemendum góð fyrirmynd. Starfið felur í sér afleysingu á öllum deildum leikskólans.
Leikskólakennari:
Menntun, uppeldi og umönnun
Áhugi á að starfa með börnum og fullorðnum.
Hópstjóri
Vinnur skv lögum og reglugerð um leikskóla
Vinnur skv stefnu skólans
Leiðbeinandi:
Áhugi á að starfa með börnum og fullorðnum.
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni.
Reynsla sem nýtist í starfi.
Aðstoða nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði.
Stundvísi og samviskusemi
Leikskólakennari:
Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
Áhugi á að starfa með börnum og fullorðnum
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni
Reynsla sem nýtist í starfi
Stundvísi og samviskusemi
Góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli skilyrði
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Íslenska










