Leikskólinn Heiðarborg
Leikskólinn Heiðarborg
Leikskólinn Heiðarborg

Sérkennsla í leikskólanum Heiðarborg

Í leikskólanum Heiðarborg við Selásbraut í Árbæ starfar öflugt sérkennsluteymi sem sinnir þeim börnum sem þurfa auka aðstoð. VIð þurfum að stækka teymið okkar sem nemur hálfum starfsmanni. Ert þú sá einstaklingur? Starfið er laust nú þegar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður úthlutar.
  • Að vera stuðningur fyrir viðkomandi deild.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í hagnýtri atferlisgreiningu, þroskaþjálfamenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af vinnu með börnum sem þurfa sérkennslu
  • Lipurð í samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Sund- og menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Frítt fæði á vinnutíma
Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Selásbraut 56, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar