
Brákarborg
Leikskólinn Brákarborg hóf nýlega starfsemi sína í nýju, endurbættu og glæsilegu húsnæði að Kleppsvegi 150-152. Unnið er með opinn efnivið, jákvæðan aga í gegnum LAUSNAHRINGINN þar sem áhersla er lögð á að börnin læri sjálfstæði í samskiptum.

Leikskólakennari eða leiðbeinandi í leikskóla
Einkunnarorð skólans eru: AGI - VIRÐING - UMHYGGJA
Það er mikilvægt að hafa þessi gildi í sínu fari og áherslum í starfi leikskólans og áhersla er lögð á að vinna saman í teymum. Börnin, líðan þeirra, virkni og þroski er okkar aðal verkefni í starfinu og felst starf okkar í því að styðja við þau í öllum stundum skóladagsins hvort sem það er að leika og ná úthaldi í leik, sjálfshjálp og öllum þeim þáttum skólalífsins sem upp koma. Við notum LAUSNAHRINGINN, en hann hefur lausnirnar SKIPTAST Á - LEIKA - HJÁLPA - STOPP - FYRIRGEFÐU - BJÓÐA KNÚS - STJÓRNA SÉR, sem aðstoða okkur öll að þjálfa upp færnina í samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara.
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
- Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
- Samskipti og samvinna við foreldra.
- Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er mikilvæg
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Færni til að nýta sér tölvur í starfi
- Góð íslenskukunnátta (a.m.k. B2 skv. evrópska tungumálarammanum)
Fríðindi í starfi
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf með möguleikann á að safna fyrir t.d. jólafrí, páskafrí og vetrarfrí
- Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kleppsvegur 150, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaHreint sakavottorðJákvæðniReyklausSjálfstæð vinnubrögðSkyndihjálpSnyrtimennskaTóbakslausUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)VeiplausVinna undir álagiÞjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Sérkennari /þroskaþjálfi/ uppeldismenntaður starfsmaður
Dalskóli

Leikskólakennari óskast í allt að 100% starf
Leikskólinn Ylur

Lausar stöður leikskólakennara eða leiðbeinanda
Leikskólinn Tjarnarskógur