
Samfélags- og náttúrufræðikennsla á unglingastigi
Við auglýsum eftir samfélags- og náttúrufræðikennara á unglingastig í Árbæjarskóla. Við óskum eftir kennara sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í teymi með jákvæðum og metnaðarfullum kennurum.
Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
- Annast kennslu í samráði við skólastjórnendur og árgangateymi.
- Vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra.
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af kennslu barna og unglinga er æskileg.
- Sérmenntun í samfélags- og náttúrufræðigreinum æskileg
- Hæfni í samskiptum.
- Faglegur metnaður.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.












