
Árbæjarskóli auglýsir eftir verkefnastjóra í ÍSAT
Árbæjarskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan verkefnastjóra í kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku, ÍSAT. Í skólanum er rekið íslenskuver. Þar eru verkefnin fjölbreytt og snúa að kennslu, skipulagningu og þróun náms í íslensku sem öðru máli, móttöku nemenda í skólann og samstarfi við önnur íslenskuver. Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 740 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru rúmlega 100 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar áhugasamt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.
- Kenna og skipuleggja nám nemenda með íslensku sem annað tungumál á öllum skólastigum.
- Taka á móti nemendum nýfluttum til Íslands og fylgja þeim eftir í námi og aðlögun í byrjun skólagöngu í samvinnu við umsjónarkennara.
- Fylgja eftir nemendum og vera ráðgefandi til kennara um námsefni og önnur málefni er varða nemendur með íslensku sem annað tungumál.
- Vinna að námskrárgerð og námsmati í íslensku sem öðru tungumáli.
- Vera í samstarfi við önnur íslenskuver.
- Vinna að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki.
- Áætlanagerð í samráði við kennara, foreldra og nemendur.
- Stuðla að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Taka þátt í teymisvinnu þvert á skólastig.
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn).
- Sérhæfing í íslensku eða íslensku sem öðru tungumáli á grunn- eða framhaldsskólastigi æskileg.
- Menntun í sérkennslu eða fjölmenningarfræðum kostur.
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Frumkvæði, skipulagshæfni, lausnamiðað viðhorf og sjálfstæð vinnubrögð.
- Áhugi á skólaþróun.
- Góð tölvukunnátta.
- Reynsla af kennslu í grunnskóla.
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.












