Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Hönnun og smíði í Árbæjarskóla haustið 2025

Laust er til umsóknar starf kennara í hönnun og smíði við Árbæjarskóla frá og með haustönn 2025. Leitað er að kennara með menntun til kennslu í hönnun og smíði og þekkingu til að efla skapandi listir í skólanum ásamt teymi list- og verkgreinakennara skólans.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 108 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar gott foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnunar- og smíðakennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur og fagteymi.
  • Vinna að þróun skólastarfs og eflingu skapandi lista í skólanum  með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við annað fagfólk og foreldra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Sérmenntun í hönnun og smíði er æskileg.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt25. mars 2025
Umsóknarfrestur6. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar