Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli

ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla

Hólabrekkuskóli óskar eftir kennara til starfa í stoðþjónustu skólans Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og áhersla er lögð á skapandi starf, teymiskennslu, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja.

Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur og 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á mál og læsi.

Ef þú ert framsækinn kennari og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Íslenskukennsla fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku.
  • Skapandi vinna með nemendum með áherslu á lestur og málörvun.
  • Teymiskennsla - fagleg vinnubrögð og samvinna.
  • Samstarf við starfsfólk, foreldra og sérfræðinga utan skólans.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
  • Vinna að jákvæðum skólabrag.
  • Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leitað er eftir jákvæðum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum fagmanni.
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 samskvæmt samevrópska matskvarðanum.
  • Stundvísi og samviskusemi.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur
  • Frítt í sund með ÍTR kortinu
  • Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
Auglýsing birt26. mars 2025
Umsóknarfrestur9. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurhólar 10, 111 Reykjavík
Bakkastaðir 2, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar