

List- og verkgreinakennarar - Víðistaðaskóli
Víðistaðaskóli leitar eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi list- og verkgreinakennurum
Um er að ræða eftirtaldar greinar:)
- Hönnun- og smíði
- Tónmennt
- Heimilisfræði
Í boði eru þrjár stöður, starfshlutfall 80-100%.
Kennararnir bætast í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans. Við erum metnaðarfull og áhugasöm í okkar störfum. Í skólanum er góður starfsandi og samheldni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu í hönnun og smíði á mið,- og unglingastigi
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, [email protected] eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, [email protected]















































