Fagrabrekka
Fagrabrekka
Fagrabrekka

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Fögrubrekku

Leikskólinn Fagrabrekka er fjögra deilda leikskóli þar sem dvelja um 70 börn. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en mikil áhersla er lögð á að börnin læri af reynslu.

Megin áhersla er lögð á skapandi starf í öllum listgreinum, einnig er lögð áhersla á lýðræðisleg vinnubrögð starfsfólks og barna auk getu barna til að afla sér reynslu og þekkingar á sínum eigin forsendum. Tónlist og hreyfing er rauði þráðurinn í starfinu sem stuðlar að vellíðan og hefur í för með sér gleði og ánægju. Einkunnarorð leikskólans virðing, gleði og frumkvæði eru ávallt í forgrunni.

Við leitum að metnaðarfullum og skapandi einstakling í stöðu leikskólastjóra. Leikskólastjóri ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi leikskólans, stendur vörð um réttindi barna og stuðlar að því að barnið njóti bestu þjónustu sem mögulegt er á hverjum tíma.

Upplýsingar um leikskólann má finna á http://fagrabrekka.kopavogur.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi leikskólans og að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans
  • Faglegur leiðtogi leikskólans sem deildir verkefnum og ábyrgð til starfsfólks í samræmi við skólanámskrá
  • Ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
  • Ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningu, vinnutilhögun og starfþróun
  • Ábyrgð á foreldrasamstarfi
  • Kynna sér nýjungar í starfi, miðla þekkingu til starfsfólks og hvetja til þróunar og nýbreytni í skólastarfi

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun (MA, Med, MT eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
  • Reynsla af rekstri leikskóla og eftirfylgni fjárhagsáætlana
  • Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti  
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Auglýsing birt28. mars 2025
Umsóknarfrestur13. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fagrabrekka 26, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar