

Umsjónarkennari á unglingastigi - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónar- og fagreinakennslu á unglingastigi skólaárið 2025-2026. Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2025.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast faggreinakennslu með áherslu á bóklegar greinar (t.d. íslensku, samfélagsfræði, náttúrufræði o.fl.) og umsjón á unglingastigi í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
- Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri [email protected] eða Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri [email protected] eða í síma 590 2800.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.



















































