Hjúkrunarfræðingur á göngudeild bæklunarskurðlækninga
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á göngudeild bæklunarskurðlækninga í Fossvogi. Á deildina leita sjúklingar á öllum aldri vegna brota og annara áverka. Einnig er þar sinnt eftirfylgd eftir aðgerðir sem og framkvæmdar dagaðgerðir. Starfshlutfall er 70-100%, unnið er í dagvinnu og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma og boðið upp á 4, 6 og 8 klst. vaktir.
Starfsánægja á deildinni er mjög góð og hér skipta góð samskipti og gagnkvæm virðing miklu máli. Mikil fjölbreytni er í starfi og góð samvinna starfsstétta þar sem er unnið markvisst að umbótum og framþróun.
Á deildinni starfar öflugur hópur hjúkrunarfræðinga sem getur miðlað mikilli þekkingu og reynslu og starfið gefur góða möguleika á starfsþróun. Áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og að veita góða og markvissa aðlögun.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð tengt gifs- og sárameðferð, minniháttar skurðaðgerðum og bráðatilvikum
- Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þvegfaglegri teymisvinnu innan deildar
- Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
- Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Góð íslenskukunnátta