Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður - Sjúkrahótel Landspítala
Við viljum ráða til starfa heilbrigðisritara/ skrifstofumann sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi á Sjúkrahóteli Landspítala við Hringbraut.
Sjúkrahótelið, sem telur 75 herbergi, er ætlað einstaklingum sem þurfa heilsu sinnar vegna að dvelja tímabundið fjarri heimili sínu vegna rannsókna og/ eða meðferðar. Markmið starfseminnar er að stytta meðallegutíma á spítalanum, efla dag- og göngudeildarþjónustu og bæta þjónustu. Þeir sem dvelja á sjúkrahótelinu eru ekki samhliða innritaðir á legudeildir. Gert er ráð fyrir að sjúklingar séu sjálfbjarga en gætu þurft eftirlit og aðstoð hjúkrunarfræðings eða sértæka þjónustu á dag-, göngu- eða legudeilda. Á sjúkrahóteli geta einnig dvalið aðstandendur sjúklinga, foreldrar sem bíða fæðingar eða eru með barn sem er inniliggjandi, auk fólks sem býr fjarri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Leitum eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er lausnamiðaður, þjónustulipur, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið er dagvinna frá kl. 8-16. Starfshlutfall er 100% og ráðið er í starfið frá 1. janúar 2025 eða eftir samkomulagi.