Almennir læknar óskast á sýkla- og veirufræðideild Landspítala (SVEID)
Lausar eru til umsóknar tvær stöður almennra lækna við Sýkla- og veirufræðideild Landspítala, til 6 mánaða að lágmarki, með möguleika á framlengingu.
Sýkla- og veirufræðideild Landspítala er þjónustu- og tilvísunarrannsóknastofa fyrir Ísland á sviði bakteríu-, veiru-, sveppa- og sníkjudýrafræði. Deildin vinnur jafnframt með sóttvarnarlækni og öðrum heilbrigðisyfirvöldum að bættri lýðheilsu. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga.
Veirufræðihluti deildarinnar er staðsettur í Ármúla 1a en sýklafræðihlutinn er að mestu leyti staðsettur á lóð Landspítalans við Barónsstíg. Á deildinni starfa nú um 80 starfsmenn, þar af eru átta sérfræðilæknar og tveir almennir læknar.
Læknar Sýkla- og veirufræðideildar gegna mikilvægu hlutverki í starfsemi deildarinnar. Þeir veita almenna ráðgjöf um greiningu smitsjúkdóma og aðstoða við val á rannsóknum, sýnatökum og -sendingum. Sjá um miðlun og túlkun rannsóknaniðurstaðna og taka mikinn þátt í gæðastarfi deildarinnar, meðal annars ritun gæðaskjala og staðfestingu. Unnið er bæði í dagvinnu og á gæsluvöktum. Ætlunin er að almennir læknar taki, eftir aðlögunartíma, þátt í læknastarfinu ásamt því að vera á gæsluvöktum með stuðningi sérfræðilæknis á bakvakt.