

Sjúkraliðar óskast á bæklunarskurðdeild B5 Fossvogi
Við óskum eftir metnaðarfullum sjúkraliðum í okkar góða hóp á bæklunarskurðdeild B5 Fossvogi. Við bjóðum velkomna sjúkraliða sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifaða. Starfshlutfall er samkomulag og eru störfin laus frá 1. nóvember 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Deildin er bráðadeild og sinnir flestum bráðatilfellum er tengjast stoðkerfi vegna slysa. Auk þess sinnir deildin sjúklingum sem leggjast inn vegna ýmisa aðgerða á stoðkerfi s.s, eftir gerfiliðaaðgerðir. Góður starfsandi ríkir á deildinni sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.
Unnið er á þrískiptum vöktum en möguleiki er á dagvinnustarfi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróun og umbótum
- Stuðla að góðum samstarfsanda
- Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta
Íslenska








































