Næringarfræðingur
Næringarstofa Landspítala auglýsir laust til umsóknar næringarfræðings. Um er að ræða fullt starf sem unnið er í dagvinnu, Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir vegna styttingu vinnuvikunnar. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Á Næringarstofu starfar öflugur hópur næringarfræðinga í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir á flestum deildum spítalans. Veitt er sérhæfð næringarmeðferð fyrir sjúklinga á bráða, legu- og göngudeildum Landspítala. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Öflugt rannsóknarstarf fer fram á Næringarstofu í samstarfi við háskóla og stofnanir innanlands og erlendis auk þess sem boðið er upp á starfsþjálfun í klínískri næringarfræði.
Við leitum eftir metnaðarfullum liðsmanni, með góða skipulags- og samskiptahæfni, sem hefur áhuga á fjölbreyttu starfi í krefjandi þverfaglegu umhverfi. Starfið er laust frá 1. janúar 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
- Umsjón með næringarmeðferð og ráðgjöf
- Þátttaka í teymisvinnu
- Gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur og endurskoðun
- Þátttaka í faglegu gæðastarfi Næringarstofu
- Leiðsögn nemenda í klínísku námi
- Íslenskt starfsleyfi sem næringarfræðingur
- Reynsla af klínískri vinnu á spítala er skilyrði
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta er skilyrði