Garðabær
Garðabær
Garðabær

Frístundaleiðbeinandi óskast við Félagsmiðstöðina Urra

Félagsmiðstöðin Urri óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda til starfa. Hlutverk frístundaleiðbeinenda er að taka þátt í skipulagningu og framkvæmd starfsemi félagsmiðstöðvarinnar. Félagsmiðstöðin er staðsett í Urriðaholtsskóla, þar sem unglingar og ungmenni á aldrinum 10 - 16 ára geta varið frítíma sínum í öruggu umhverfi. Unnið er útfrá jafnréttishugsjónum og stuðla að tilfinninga- og félagsþroska ungmenna í gegnum tómstundir. Í uppbyggingu er sértækt hópastarf og fjölbreytt klúbbastarf. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frístundastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar. Um er að ræða 40% starf á dag- og kvöldvöktum með möguleika á aukavöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir vöktum í félagsmiðstöðinni Urra
  • Sértækt hópastarf, námskeið, fræðsla, samvinna við grunnskóla o.fl.
  • Skipuleggur og mótar frístundarstarf fyrir börn og unglinga þar sem höfð eru að leiðarljósi uppeldis- og forvarnamarkmið
  • Sækir fræðslu í samráði við annað starfsfólk sviðsins
  • Sækir viðburði með börnum og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar
  • Hefur aðkomu að samfélagsmiðlum Urra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi. Háskólamenntun á sviði uppeldis-, tómstunda- og/eða félagsmálafræði eða sambærileg uppeldismenntun kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er nauðsynleg og þekking á málaflokknum æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Þekking á umhverfi samfélagsmiðla og helstu forrita til efnissköpunar
  • Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Heiðarleiki, stundvísi og umburðarlyndi
  • Samráð og samvinna við börn, unglinga, forráðafólk og samstarfsfólk
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára gamall
Auglýsing birt23. janúar 2025
Umsóknarfrestur3. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vinastræti 14, 210 Garðabær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar