Garðabær
Garðabær
Garðabær

Leikskólinn Hæðarból auglýsir eftir leikskólakennara

Hæðarból er þriggja deilda skóli með 53 börn á aldrinum 18 mánaða til sex ára. Leikskólinn vinnur eftir kenningum bandaríska heimspekingsins og sálfræðingsins John Dewey " Learning by Doing " og uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar (e. restitution). Þar sem lögð er áhersla á jákvæð samskipti, uppbyggilega orðræðu og gagnkvæma virðingu, hægt er að lesa meira um hugmyndafræðina á; Uppbygging sjálfsaga | uppeldi til ábyrgðar

Einkunnarorð skólans eru, gleði, leikur, nám sem fléttast inn í alla starfs- og kennsluhætti skólans. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, góð samskipti, umburðarlyndi, jákvæðni og sveigjanleika.

Á Hæðarbóli starfar mikið af fagfólki og reynslumiklum leiðbeinendum sem leggja ríka áherslu á faglegt og gott starf með börnunum. Í skólanum er lögð áhersla á að starfsfólk fái að nýta styrkleika sína og áhugasvið sitt í daglegu starfi með börnunum. Mikil áhersla er á að starfsfólk komi fram við börnin að virðingu, hlusti á þau og velji orðræðu af kostgæfni.

Heimasíða leikskólans: https://haedarbol.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Menntun á sviði sérkennslufræða, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er kostur
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

*Fáist ekki einstaklingur með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða starfsfólk með háskólamenntun til starfa tímabundið sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur - Eftir sex mánuði í starfi á starfsfólk rétt á 20.000 kr í heilsuræktarstyrk
  • Sundkort - Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk Garðabæjar fengið árskort í sundlaug Garðabæjar án endurgjalds
  • Menningarkort - Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk Garðabæjar fengið aðgang að Hönnunarsafni Íslands án endurgjalds.
  • Bókasafnskort - Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk Garðabæjar fengið árskort á Bókasafn Garðabæjar án endurgjalds.
Auglýsing birt15. janúar 2025
Umsóknarfrestur27. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar