Ert þú framtíðar forstöðumaður?
Garðabær auglýsir starf forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar Breiðumýri Álftanesi. Þar er líflegt íþróttasamfélag sem er mikið sótt af íbúum Garðabæjar. Þar eru sundlaugar, heilsurækt og íþróttasalir sem þjóna skólakennslu, æfinga- og keppnishópum í körfubolta, blaki, karate og dansi, auk almennings sem stundar sundlaugina og hópatíma í heilsurækt. Fjölmargir kappleikir og fjölliðamót fara fram í Breiðumýri á hæsta getustigi Í byggingunni er einnig starfrækt félagsmiðstöðin Elítan, Garðahraun frístund fatlaðra barna, félagsstarf UMFÁ, Lions klúbbs Álftaness og fleira
Fjöldi starfsmanna er allt að 20 talsins.
Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem hefur framúrskarandi þjónustulund, metnað fyrir því að skapa frábæra upplifun fyrir gesti og halda vel utan um íþróttamiðstöðina og fjölbreyttan hóp starfsfólks.
- Eftirlit með fjármálum, mannauðsmálum og tryggja að starfsemin standist kröfur samkvæmt lögum og reglugerðum
- Tryggir móttöku og þjálfun nýrra starfsmanna
- Samskipti við skóla, íþróttafélög og leigutaka, bókanir á útleigutímum mannvirkisins
- Mótun umgengni og eftirlit með iðkendum og gestum mannvirkisins
- Eftirlit með búnaði og hússtjórnarkerfum
- Þátttaka í stjórnunarteymi íþróttamannvirkja Garðabæjar
- Önnur tilfallandi störf
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi þjónustulund
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á þörfum íþróttagreina varðandi æfinga- og keppnisaðstöðu
- Reynsla af stjórnun
- Samskiptahæfni við börn og fullorðna
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og rekstri stofnana er æskileg
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur