

Aðstoðardeildarstjóri á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild A4 í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun, búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga.
Aðstoðardeildarstjóri er virkur þáttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans. Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. júní 2025 eða eftir samkomulagi.
HNE-, lýta- og æðaskurðdeild, A4, er 18 rúma bráðadeild og þar er rekin þriggja sérgreina skurðdeild. Á deildinni er sjúklingum sinnt eftir háls-, nef- og eyrnaaðgerðir, lýtaaðgerðir, æðaskurðaðgerðir og einnig er þar starfrækt sérhæfð sáradeild. A4 er eina brunadeildin á landinu og sinnir öllum alvarlegri brunaslysum. Hjúkrunarfræðingar á deildinni hafa sérhæft sig í sárum og sárameðferð. Sjúklingahópurinn er því mjög fjölbreyttur og enginn dagur er eins á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

















































