
Sólvangur hjúkrunarheimili
Sóltún hóf störf í janúar 2002 og var fyrsta hjúkrunarheimilið á landinu sem fór í einkaframkvæmd. Við bjóðum upp á hjúkrun, heilsueflingu og stuðning en í dag eru rekin tvö hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, Sóltún í Reykjavík og Sólvangur í Hafnarfirði sem opnaði árið 2019. Auk heimilanna tveggja er boðið upp á heimaþjónustu, endurhæfingu, dagdvöl og dagþjálfun.
Heimilisandi og virðing fyrir einkalífi hvers skjólstæðings er ráðandi í okkar starfi en einnig öryggiskennd íbúanna sem hlýst með sambýli við aðra og sólarhrings hjúkrunarþjónustu.
Athafnir daglegs lífs eru viðfangsefni á hvoru heimili fyrir sig. Áhersla er lögð á þátttöku íbúa og aðstandenda þeirra eftir getu, óskum og vilja hvers og eins.

Aðstoðardeildarstjóri óskast!
Við leitum að hæfum og metnaðarfullum sjúkraliða með diplómunám í stöðu aðstoðardeildarstjóra til að styrkja okkar faglega teymi á hjúkrunarheimilinu Sólvangi Hafnarfirði. Starfið felur í sér ábyrgð á stjórnun hjúkrunar ásamt ábyrgð á þjónustugæðum og öryggi á deild. Um er að ræða 100% starfshlutfall í dagvinnu.
Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem vilja hefja sinn stjórnunarferil í stuðningsríku og hlýlegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðir og skipuleggur hjúkrun á deild í samráði við deildarstjóra
- Ber meginábyrgð á klínískum viðfangsefnum og þjónustu við íbúa í samræmi við kröfur um þjónustu á hjúkrunarheimilum
- Tryggir gæði og samfellu í þjónustunni í samstarfi við deildarstjóra
- Tekur þátt í fræðslu og kennslu fyrir nýtt starfsfólk og nemendur
- Ber ásamt deildarstjóra ábyrgð á móttöku nýrra íbúa
- Tekur þátt í teymisvinnu og RAI mati
- Er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjúkraliði með diplómunám í öldrunarhjúkrun
- Góð klínísk færni og fagleg vinnubrögð
- Reynsla í öldrunarþjónustu
- Góð færni í verkefnastjórnun og teymisvinnu
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur
- Niðurgreiddur hádegismatur
Nánari upplýsingar veitir
Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður á netfangið [email protected]
Auglýsing birt15. apríl 2025
Umsóknarfrestur27. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurStundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Starfsfólk í umönnun
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Framleiðslustjóri
Ístak hf

Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Sjúkraliði á ferð og flugi um borgina
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Aðstoðardeildarstjóri óskast!
Sólvangur hjúkrunarheimili

Aðstoðarmaður iðjuþjálfa á Skjóli
Skjól hjúkrunarheimili

Almenn umsókn um sumarstarf
Sumarstörf - Kópavogsbær

Hjúkrunarfræðingur á Hömrum, nýtt og spennandi verkefni
Hamrar hjúkrunarheimili

Aðstoðarmaður iðjuþjálfa sumarstarf - Hraunvangur
Hrafnista

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði á Hömrum og Eirhömrum, nýtt og spennandi verkefni
Hamrar hjúkrunarheimili

Starfsmaður í heimaþjónustu - Helgarvinna
Fjarðabyggð