

Umsjónaraðili – búseta á stuðningsheimili
Suðurmiðstöð auglýsir eftir umhyggjusömum, traustum og jákvæðum einstaklingi til að búa á stuðningsheimili í Reykjavík sem umsjónaraðili.
Umsjónaraðili býr í íbúð ásamt fjórum ungmennum sem eru á aldrinum 17-23 ára, neyta ekki vímugjafa og stunda vinnu eða nám. Þau eiga það sameiginlegt að hafa ekki möguleika á að búa heima hjá forsjáraðilum eða hefja sjálfstæða búsetu. Markmiðið er að ungmennin öðlist sjálfstæði til að búa ein.
- Veita stuðning í daglegu lífi
- Vera til staðar þegar á þarf að halda
- Byggja upp jákvætt og gott andrúmsloft á heimilinu
- Stuðla að góðum samskiptum og tryggja að húsreglum sé fylgt
- Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur reynslu af því að að halda heimili og hæfni í mannlegum samskiptum til að geta veitt ungmennunum stuðning í þeirra daglega lífi. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög um félagsþjónustu. Samhliða búsetu á stuðningsheimilinu getur umsjónaraðili stundað dagvinnu eða verið í námi.


































