Tannlæknar Flatahrauni
Tannlæknar Flatahrauni
Tannlæknar Flatahrauni

Móttökuritari á tannlæknastofu

Tannlæknastofa í Hafnarfirði óskar eftir þjónustuliprum og áreiðanlegum móttökuritara til að starfa. Um er að ræða tímabundið starf til 1. apríl 2026 með möguleika á áframhaldandi starfi.

Við leitum eftir einstaklingi sem er fljótur að læra, með mikla þjónustulund og áhuga á fjölbreyttum verkefnum í krefjandi en gefandi starfsumhverfi. Starfið felur í sér mikil samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk, sem krefst bæði sjálfstæðis og samstarfshæfileika.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn umsjón með bókunum og afgreiðslu skjólstæðinga

  • Ritarastörf og svörun fyrirspurna í tölvupósti

  • Símsvörun og upplýsingagjöf til viðskiptavina

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund

  • Stundvísi, áreiðanleiki og hæfni til að vinna í tímasettum verkefnum

  • Góð almenn tölvukunnátta (Word, Outlook)

  • Mjög góð íslenskukunnátta, bæði töluð og rituð

  • Góð enskukunnátta

Auglýsing birt30. mars 2025
Umsóknarfrestur6. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Flatahraun 5A, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar