

Stuðningsfulltrúi í sumarstarf á íbúðarkjarna í Grafarvogi
Íbúðarkjarninn Móavegi 10 auglýsir eftir sumarstarfsfólki. Skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarf. Þar sem enginn dagur er eins og allir dagar bjóða upp á ævintýri. Um nokkrar stöður er að ræða í 70-90% starfshlutfalli. Unnið er á blönduðum vöktum.
Lausar eru afleysingarstöður í sumar í stöðu stuðningsfulltrúa á íbúðakjarnanum Móavegi 10 í Grafarvogi. Stöðurnar eru nokkrar og eru allt frá 70-90%. Um blandaðar vaktir er að ræða. Á Móavegi er lögð áhersla á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi með það að markmiði að aðstoða þau í að skapa og þróa ný tækifæri í sínu lífi. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúana. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.
- Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
- Starfsmaður vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
- Markmiðið er að styðja einstaklinga við að búa á eigin heimili, stunda vinnutengda stoðþjónustu, auka samfélagsþátttöku, sækja þjónustu og njóta menningar og félagslífs.
- Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins og laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi.
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
































