Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Svæfingahjúkrunarfræðingur - Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Skurð og svæfingadeild HVE á Akranesi óskar eftir að ráða inn hjúkrunarfræðing með sérhæfingu í svæfingahjúkrun. Í boði er starf á frábærum vinnustað þar sem samvinna, faglegt starf og öryggi sjúklinga er haft að leiðarljósi.

Staðan er laus og unnið er í dagvinnu og bakvöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem fylgja starfi á skurð- og svæfingadeild.

Á deildinni er þrjár skurðstofur og þar starfa svæfingahjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum.

Á skurð- og svæfingadeild eru gerðar rúmlega 2000 skurð- og dagdeildaraðgerðir á ári. Við deildina starfa sérfræðingar í almennum skurðlækningum, bæklunarskurðlækningum og kvensjúkdómum svo eitthvað sé nefnt. Sólarhringsvaktþjónusta svæfingalækna, kvensjúkdóma- og almennrar skurðlækna sem og lyflækna er á HVE Akranesi.

Unnið er eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjandi skal hafa íslenskt hjúkrunarleyfi auk sérnáms í svæfingahjúkrun.

Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.

Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Auglýsing birt6. desember 2024
Umsóknarfrestur13. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Merkigerði 9, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar