Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sjúkraliði á heilsugæslustöð HVE Ólafsvík og Grundafirði

HVE heilsugæslan í Ólafsvík og Grundafirði óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa

Ákjósanlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfshlutfall er 70-100 % og er ákveðið með framkvæmdastjóra hjúkrunar HVE.

Staðan er laus

Helstu verkefni og ábyrgð

Sjúkraliði ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum umönnun og hjúkrun í samræmi við markmið og stefnu hjúkrunar hjá stofnuninni. 

Sjúkraliði ber ábyrgð á störfum sínum í samræmi við lög nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn og reglugerð nr. 511/2013 um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Sjúkraliða og almennum starfsmanni ber að fylgja faglegum fyrirmælum næsta yfirmanns, og sinna störfum sínum af árvekni, trúmennsku og virðingu í samræmi við faglegar kröfur sem gerðar eru til starfsins á hverjum tíma.  

Staðan felur í sér ýmis verk á heilsugæslustöðvum HVE í Ólafsvík og Grundafirði

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi. 
  • Góða íslensku kunnáttu. 
  • Góða hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Stundvísi, sjálfstæð vinnubrögð og faglegan metnað.
Fríðindi í starfi

Með umsókn skal fylgja staðfest afrit af sjúkraliðaleyfi og námsmat frá SLFÍ ef við á.

Sótt er um á starfatorg.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt6. desember 2024
Umsóknarfrestur16. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Engihlíð 28, 355 Ólafsvík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar