Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunar-og legudeild HVE Stykkishólmi

Óskum eftir hjúkrunarfræðingum á hjúkrunar- og legudeild HVE Stykkishólmi. Um er að ræða vaktavinnu, unnið er á tvískiptum vöktum, bakvöktum á nóttu og aðra hverja helgi ásamt bakvöktum. Starfshlutfall er 50-100% eða eftir nánara samkomulagi.

Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Á HVE Stykkishólmi er veitt almenn lyflækninga- og öldrunarhjúkrun.

Á HVE er gott að starfa og ríkir sérstaklega hlýr og góður starfsandi þar sem mikið er lagt upp úr góðri teymsivinnu allra starfshópa með fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra að leiðarljósi.

Starfið felur í sér hjúkrun á sviði lyflækninga og öldrunar

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.

  • Starfsleyfi landlæknis.

  • Reynsla af hjúkrun er kostur.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.

Fríðindi í starfi

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Sótt er um starfið rafrænt á starfatorg.is

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.

Staðfesting á bólusetningum

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2024

Nánari upplýsingar veitir

Þórný Alda Baldursdóttir, thorny.baldursdottir@hve.is

Auglýsing birt6. desember 2024
Umsóknarfrestur13. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurgata 7, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar