![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-4441c772-46f3-4fc2-a44a-ea02d0531736.png?w=1200&q=75&auto=format)
Deildarstjóri – Leikskólinn Hlíðarendi
Leikskólinn Hlíðarendi óskar eftir deildarstjóra í afleysingu næsta skólaár í 100% starfshlutfall.
Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að og bera ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Að bera ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og tryggja að öll börn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum
- Að bera ábyrgð á samstarfi við foreldra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
- Stjórnunarreynsla æskileg
- Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
- Færni í samskiptum og sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðlaugdóttir leikskólastjóri og Fjóla Kristjánsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið hlidarendi@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí 2024.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)

![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Dalvíkurbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/4b434868-216b-4e17-8541-9724dc075722.png?w=256&q=75&auto=format)
![Flataskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3083b619-76ea-49c1-a093-167d9336d7df.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Árbæjarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/37a4b9fd-7ccf-4398-9e88-a8aa056c90be.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hofsstaðaskóli Garðabæ](https://alfredprod.imgix.net/logo/39dabba6-1009-4327-875e-8d51fd839373.png?w=256&q=75&auto=format)
![Siðmennt](https://alfredprod.imgix.net/logo/720620c7-3c86-4e29-947a-c30e761203a3.png?w=256&q=75&auto=format)
![Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)](https://alfredprod.imgix.net/logo/490cf0c4-7a3c-413b-a3cd-e8f22ff253b4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Laugasól](https://alfredprod.imgix.net/logo/2e4e0292-7c1c-41ba-b685-8beb67ef2a64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Fossvogsskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-240ef19a-04b8-4d2a-9d32-ac076fc13519.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Blásalir](https://alfredprod.imgix.net/logo/8e193b41-c90b-4aa4-bf96-656c711006ef.png?w=256&q=75&auto=format)
![Akureyri](https://alfredprod.imgix.net/logo/4c7cd6c3-5038-4744-b963-39bac8f37b6c.png?w=256&q=75&auto=format)