![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-4441c772-46f3-4fc2-a44a-ea02d0531736.png?w=1200&q=75&auto=format)
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi í samstarfi við deildarstjóra
- Að fylgjast vel með velferð barna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Vinnur náið í samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðaðlámskrá leikskóla.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg
- Þekking á starfsaðferðum Reggio Emilia er æskileg
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunátta er skilyrði
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
- Samgöngustyrkur
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veita Telma Ýr Friðriksdóttir leikskólastjóri og Elísabet Karlsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-4941 eða í gegnum netfangið bjarkalundur@hafnarfjordur.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 4. júlí 2024.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)

![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Dalvíkurbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/4b434868-216b-4e17-8541-9724dc075722.png?w=256&q=75&auto=format)
![Flataskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3083b619-76ea-49c1-a093-167d9336d7df.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Árbæjarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/37a4b9fd-7ccf-4398-9e88-a8aa056c90be.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hofsstaðaskóli Garðabæ](https://alfredprod.imgix.net/logo/39dabba6-1009-4327-875e-8d51fd839373.png?w=256&q=75&auto=format)
![Siðmennt](https://alfredprod.imgix.net/logo/720620c7-3c86-4e29-947a-c30e761203a3.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Laugasól](https://alfredprod.imgix.net/logo/2e4e0292-7c1c-41ba-b685-8beb67ef2a64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Fossvogsskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-240ef19a-04b8-4d2a-9d32-ac076fc13519.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Blásalir](https://alfredprod.imgix.net/logo/8e193b41-c90b-4aa4-bf96-656c711006ef.png?w=256&q=75&auto=format)
![Akureyri](https://alfredprod.imgix.net/logo/4c7cd6c3-5038-4744-b963-39bac8f37b6c.png?w=256&q=75&auto=format)