![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-4441c772-46f3-4fc2-a44a-ea02d0531736.png?w=1200&q=75&auto=format)
Sérkennari - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli auglýsir eftir sérkennara til að sinna sérkennslu skólaárið 2024-2025
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Sérkennari er hluti af sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna með sérþarfir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast sérkennslu í skólanum.
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun á sviði sérkennslufræða æskileg
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til 9. júlí 2024. Um er að ræða 50-100% starf
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)

![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Dalvíkurbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/4b434868-216b-4e17-8541-9724dc075722.png?w=256&q=75&auto=format)
![Flataskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3083b619-76ea-49c1-a093-167d9336d7df.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Árbæjarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/37a4b9fd-7ccf-4398-9e88-a8aa056c90be.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hofsstaðaskóli Garðabæ](https://alfredprod.imgix.net/logo/39dabba6-1009-4327-875e-8d51fd839373.png?w=256&q=75&auto=format)
![Siðmennt](https://alfredprod.imgix.net/logo/720620c7-3c86-4e29-947a-c30e761203a3.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Laugasól](https://alfredprod.imgix.net/logo/2e4e0292-7c1c-41ba-b685-8beb67ef2a64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Akureyri](https://alfredprod.imgix.net/logo/4c7cd6c3-5038-4744-b963-39bac8f37b6c.png?w=256&q=75&auto=format)
![Fossvogsskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-240ef19a-04b8-4d2a-9d32-ac076fc13519.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Blásalir](https://alfredprod.imgix.net/logo/8e193b41-c90b-4aa4-bf96-656c711006ef.png?w=256&q=75&auto=format)