![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-4441c772-46f3-4fc2-a44a-ea02d0531736.png?w=1200&q=75&auto=format)
Deildarstjóri í tómstundamiðstöð - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli auglýsir eftir deildarstjóra í tómstundarmiðstöð skólans
Tómstundamiðstöð Hraunvallaskóla samanstendur af frístundaheimilinu Hraunseli og félagsmiðstöðinni Mosanum. Í frístundaheimilinu Hraunseli er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur á aldrinum 6-9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi líkur til kl. 17:00 alla virka daga, óháð getu þroska eða fötlun en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Félagsmiðstöðin Mosinn er fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk og er opin að jafnaði þrjú kvöld/eftirmiðdaga í viku. Aðaláherslan er á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir alla í 5.-10. bekk. Markmið starfsins er að gefa að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Hraunvallaskóli er heildstæður, grunnskóli staðsettur í fallegu umhverfi í hrauninu í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Einkunnarorð skólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Verkefni deildarstjóra:
Deildarstjóri ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Hann ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Hann vinnur náið með stjórnunarteymi Hraunvallaskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón og ábyrgð með starfsemi tómstundamiðstöðvar ásamt aðstoðarverkefnastjóra
- Sinnir forvarna- og fræðslustarfi um ýmis málefni sem tengjast börnum og ungmennum
- Stýrir daglegu og faglegu starfi tómstundamiðstöðvar
- Skipulagning og framkvæmd verkefna og viðburða
- Ábyrgð á að starfsemin sé í samræmi við lög og reglugerðir og samþykktir Hafnarfjarðarbæjar
- Umsjón með eftirliti og mati á þjónustu deildarinnar
- Sér til þess að upplýsingaflæði til barna, unglinga, foreldra og samstarfsaðila sé virkt
- Stýrir verkaskiptingu milli starfsmanna og veitir leiðsögn um framkvæmd starfseminnar
- Stuðlar að góðu samstarfi við ýmsa aðila, s.s. foreldra, skóla, félagsþjónustu, aðrar stofnanir, aðrar félagsmiðstöðvar og frístundaheimili og samtök sem vinna að málefnum barna og unglinga
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og falla innan eðlilegs starfsviðs hans
Menntunar og hæfnikröfur:
- Bakkalár háskólapróf s.s. á sviði uppeldis- og menntunarfræða, tómstundarfræði eða annað háskólanám sem nýtist í starfi.
- Skipulags- og stjórnunarhæfileikar
- Reynsla og áhugi af starfi með börnum og ungmennum
- Áhugi á málefnum barna og forvörnum.
- Þekkingu á að vinna með hópastarf
- Reynsla af þverfaglegu samstarfi
- Æskilegt er að viðkomandi hafi unnið í frístundaheimili eða félagsmiðstöð
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi.
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Samskipta- og samstarfshæfni í mannlegum samskiptum
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is, Ásta Björk Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri astabjork@hraunvallaskoli.is og Sara Pálmadóttir sarap@hafnarfjordur.is eða í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 12. júlí. 2024. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Um 100% starf er að ræða.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)

![Rafíþróttadeild Keflavíkur](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-80dfb497-c904-484b-84f5-6ae501c1799b.png?w=256&q=75&auto=format)
![Luxury Adventures](https://alfredprod.imgix.net/logo/fd6a4d6c-5ae5-463c-88dc-23b89b340ba9.png?w=256&q=75&auto=format)
![HSE Bókhald & Uppgjör ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-9cbec3d2-5196-4f0d-8a5e-f20dc016bcee.png?w=256&q=75&auto=format)
![Árnason Faktor](https://alfredprod.imgix.net/logo/3b2c5bb3-b10d-4c27-bfb3-215c04c410fc.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hrafnista](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-ff27d689-8902-4e45-8846-f28cebfc9b93.png?w=256&q=75&auto=format)
![Takk ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-79cd3257-64d7-4a86-8565-564a54ce82b4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Fjarðabyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/ba86577f-f1cf-420b-b443-3f1678b3ee47.png?w=256&q=75&auto=format)

![Nasdaq](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-31d0c47e-ea6d-407f-bc68-fb77457359ac.png?w=256&q=75&auto=format)
![Öryggismiðstöðin](https://alfredprod.imgix.net/logo/c14ad515-4d72-4c30-9a63-1806d7a94a45.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Reykhólahreppur](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-a5837fe8-4c70-45a9-b3dd-044a0ef658b5.png?w=256&q=75&auto=format)