![Takk ehf](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-79cd3257-64d7-4a86-8565-564a54ce82b4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Takk ehf](https://alfredprod.imgix.net/cover/is-fffd5bae-6f38-4bb2-8054-9735cde9fe97.png?w=1200&q=75&auto=format)
Það á að vera gaman í vinnunni...
Vilt þú:
- Vera á skemmtilegum og gefandi vinnustað?
- Upplifa tillitssemi og skilning í vinnu?
- Vinna á sveigjanlegan vinnutíma með góð launatækifæri?
- Hafa áhrif á nærumhverfið þitt?
- Læra nýja hluti af hæfileikaríku fólki?
Ef svo er, þá viljum við endilega fá þig í vinnu!
________________________________________________________
Starfsumhverfi
Við leggjum mikið upp úr öflugu félagslífi og setjum starfsánægju ávallt í efsta sæti. Til marks um það höfum við saman hlotið verðlaun VR fyrir fyrirtæki ársins í þrígang - og viljum gera betur á hverju ári.
________________________________________________________
Starfsemi
Við erum markaðsfyrirtæki með fjölbreytta starfsemi. Það sem við erum bæði best í, og gerum mest af, er að vinna með íslenskum hjálparsamtökum í að gera heiminn að betri stað.
________________________________________________________
Hlutverkið
Starfið felur í sér fjölbreytt samskipti í síma fyrir hjálparsamtök. Starfið er gefandi og kennir dýrmæta þekkingu á hjálparsamtökum, sannfæringu og sölu sem nýtist víðsvegar í samfélaginu.
Við tökum vel á móti öllu nýju starfsfólki með góðum þjálfunarferil - svo öll geti komið sér vel fyrir í starfi og félagslífi sem allra fyrst.
________________________________________________________
Frekari upplýsingar
Meira um vinnustaðinn og fríðindi í starfi má finna hér.
-
- Virk skemmtinefnd - Tryggir öflugt félagslíf með fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum í gegnum árið.
- Góð launatækifæri - Góð laun og mjög sanngjarnt bónuskerfi í boði.
- Greidd afmælisfrí - Við eigum öll skilið gott frí á afmælisdaginn, og því bjóðum við daginn launaðan svo hægt sé að fagna honum.
- Sveigjanlegur vinnutími - Starfshlutfall og vinnustundir eru mjög sveigjanlegar og fara eftir þörfum hvers og eins, á leyfðum opnunartíma. Því gætir þú ráðið eigin vinnutíma!
- Fjarvinna - Fjarvinna í boði eftir þjálfunartímabil, með möguleika á að vinna erlendis frá.
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Luxury Adventures](https://alfredprod.imgix.net/logo/fd6a4d6c-5ae5-463c-88dc-23b89b340ba9.png?w=256&q=75&auto=format)
![HSE Bókhald & Uppgjör ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-9cbec3d2-5196-4f0d-8a5e-f20dc016bcee.png?w=256&q=75&auto=format)
![Árnason Faktor](https://alfredprod.imgix.net/logo/3b2c5bb3-b10d-4c27-bfb3-215c04c410fc.png?w=256&q=75&auto=format)
![Tengi](https://alfredprod.imgix.net/logo/67a6754a-53e0-47ec-b265-30898291601a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hrafnista](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-ff27d689-8902-4e45-8846-f28cebfc9b93.png?w=256&q=75&auto=format)
![KiDS Coolshop](https://alfredprod.imgix.net/logo/fb6a8055-9c39-44f4-94f0-ca78f6c86bfa.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Byko](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b284fdfd-9d7b-462d-bb53-4c414046ea8d.png?w=256&q=75&auto=format)
![Byko](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-b284fdfd-9d7b-462d-bb53-4c414046ea8d.png?w=256&q=75&auto=format)
![Tryggingar og ráðgjöf ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/1ab02a9a-e54c-4d2d-bab1-d6c06fc4e751.png?w=256&q=75&auto=format)
![Coca-Cola á Íslandi](https://alfredprod.imgix.net/logo/637d8147-d9e5-44a6-afb9-7f55ad12fa1a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Nasdaq](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-31d0c47e-ea6d-407f-bc68-fb77457359ac.png?w=256&q=75&auto=format)