![Tengi](https://alfredprod.imgix.net/logo/67a6754a-53e0-47ec-b265-30898291601a.png?w=256&q=75&auto=format)
![Tengi](https://alfredprod.imgix.net/adcover/is-d9f10f6c-9bb1-4b0f-a8a7-d4fa34a65fcf.jpeg?w=1200&q=75&auto=format)
Sölufulltrúi í verslun Tengis á Akureyri
Tengi óskar eftir að ráða árangursdrifinn og metnaðarfullan einstakling í fjölbreytt og spennandi starf í nýrri og stórglæsilegri verslun fyrirtækisins á Akureyri. Um er að ræða sölufulltrúastöðu hjá leiðandi fyrirtæki á sviði hreinlætistækja og lagnaefnis.
Starfssvið
- Sala og þjónusta til viðskiptavina
- Tilboðsgerð og eftirfylgni
- Vörumóttaka og afgreiðsla á vörum út af opnum lager fyrirtækisins
- Veitir framúrskarandi þjónustu í takt við gildi og framtíðarstefnu fyrirtækisins
Hæfniskröfur:
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af sölumennsku er æskileg
- Þekking á pípulagnaefni og/eða hreinlætistækjum er kostur
- Stundvísi
- Áreiðanleiki
- Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 25 ára aldri
- Góð tölvukunnátta
Um framtíðarstarf er að ræða.
Tengi er stofnað árið 1981 og sérhæfir sig í ráðgjöf og sölu á hreinlætistækjum og pípulagningaefni. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Kópavogi en fyrirtækið er einnig með starfsstöðvar á Akureyri og Selfossi.
Hlutverk Tengis er að auðvelda viðskiptavinum val á gæðavörum á sviði hreinlætistækja og lagnaefnis sem studdar eru af framúrskarandi þjónustu. Tengi er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. Tengi er eitt af Fyrirmyndarfyrirtækjum VR árið 2024 og Framúrskarandi fyrirtækjum Creditinfo 2023.
Tengi er jafnlaunavottað fyrirtæki
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Ford á Íslandi | Brimborg](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-7601dafb-acce-431f-bfa9-05584d730810.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Fast Parts ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/7507e6e4-81d8-4225-9b9f-0a5df15d4c6e.png?w=256&q=75&auto=format)
![HL Adventure](https://alfredprod.imgix.net/logo/29682b1f-4708-42a5-8beb-aa1f2dc30fca.png?w=256&q=75&auto=format)
![Apótekarinn](https://alfredprod.imgix.net/logo/853e3c82-dd6b-4950-81e7-b0ad0680d82e.png?w=256&q=75&auto=format)
![Apótekarinn](https://alfredprod.imgix.net/logo/853e3c82-dd6b-4950-81e7-b0ad0680d82e.png?w=256&q=75&auto=format)
![Apótekarinn](https://alfredprod.imgix.net/logo/853e3c82-dd6b-4950-81e7-b0ad0680d82e.png?w=256&q=75&auto=format)
![Garðs Apótek](https://alfredprod.imgix.net/logo/34d70ef6-7971-4348-964d-a41698cd20de.png?w=256&q=75&auto=format)
![Vila](https://alfredprod.imgix.net/logo/d3d3526d-d130-4811-9abf-b7c2ce840b6f.png?w=256&q=75&auto=format)
![Síminn](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-44e769d9-988a-4906-b5d5-36fed28339b4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Plast, miðar og tæki](https://alfredprod.imgix.net/logo/18af546b-28ae-4d1a-bf5e-b27a19a0d9f4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Avis og Budget](https://alfredprod.imgix.net/logo/cbcf64b2-6fe7-4c60-8d03-0b5258c80c24.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hönnun - lagnir og eftirlit ehf.](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-ed3709dc-2fa9-4ebe-bf09-0098e6405d0e.jpeg?w=256&q=75&auto=format)