![Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)](https://alfredprod.imgix.net/logo/490cf0c4-7a3c-413b-a3cd-e8f22ff253b4.png?w=256&q=75&auto=format)
![Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)](https://alfredprod.imgix.net/cover/a31a611a-c554-4995-8d80-fa95510c4e95.png?w=1200&q=75&auto=format)
Upplýsingatæknistjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) auglýsir eftir upplýsingatæknistjóra.
HSS er miðpunktur heilbrigðisþjónustu samfélagsins á Reykjanesi þar sem miklir umbrotatímar hafa staðið yfir. Mikilvægt er að tryggja öryggi þjónustunnar og viðbragð stofnunarinnar við yfirstandandi náttúruvá sem og mikla vexti sem hefur orðið á þjónustuþörf vegna örrar fjölgunar íbúa í umdæmi stofnunarinnar.
Upplýsingatæknistjóri stýrir starfsemi upplýsingatæknideildar HSS og er í forystu um skilvirka upplýsingastjórnun, hagnýtingu heilbrigðis- og upplýsingatækni og stöðugum umbótum tengdum upplýsingaöryggi.
Starfið felur í sér umsjón og eftirfylgni með frammistöðu deildarinnar í heild, einstakra ábyrgðasviða hennar sem og frammistöðu starfsfólks og birgja sem sinna þjónustu tengdri upplýsingatækni.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Sem upplýsingatæknistjóri munt þú meðal annars:
- Vinna náið með stjórnendum og starfsfólki HSS
- Gera upplýsingatækniþjónustu HSS sýnilega og aðgengilega
- Móta og framfylgja framtíðarsýn og stefnu HSS um hagfellda hagnýtingu upplýsingatækninnar og upplýsingaöryggi
- Leiða framþróun og stýra breytingum á UT innviðum, kerfum og annarri UT högun stofnunarinnar
- Vera í forsvari fyrir HSS í öllu samráði og samvinnu stofnunarinnar á sviði upplýsingatækni og upplýsingastjórnunar
- Bera ábyrgð á gerð og réttum efndum samninga á sviði upplýsingatækni
- Tryggja snarpa og skilvirka þjónustu við notendur í tölvuumhverfi stofnunarinnar
- Stuðla að og styðja við framþróun á vefum og öðrum miðlum stofnunarinnar
- Vinna að framtíðarþróun, sjálfvirknivæðingu og samþættingu í miðlun upplýsinga og samskiptum HSS við aðrar stofnanir
- Skilgreina markmið deildarinnar og gera reglulega grein fyrir frammistöðu og árangri til framkvæmdastjórnar
- Viðamikil reynsla af störfum við upplýsingatæknirekstur og þjónustu
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Reynsla af þjónustu- og gæðastjórnun skv. forskrift, t.d. ISO27001, ITIL
- Skipulagshæfni
- Reynsla af verkefnastýringu upplýsingatækniverkefna
- Reynsla af gerð ferla, verklagsreglna og lausna
- Geta til að tjá sig í riti og ræðu á íslensku og ensku
- Viðeigandi menntun sem umsækjandi getur hagnýtt í upplýsingatæknirekstri og þjónustu
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![Enska](https://alfredflags.imgix.net/en.png?w=60&h=60)
![Eir hjúkrunarheimili](https://alfredprod.imgix.net/logo/9783af25-9630-4950-8698-8feeb86bcd6d.png?w=256&q=75&auto=format)
![Urriðaból Garðabæ](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-9ff17e1e-0c13-486c-ad88-8a0e78994b1a.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Kópavogsbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/41a293e1-fc6c-41cb-80b7-ba4ed6a08a79.png?w=256&q=75&auto=format)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Mánaland](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-41a94a6a-fd7d-4895-8d69-08b7422570d1.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hafnarfjarðarbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/34ef851d-fa7f-4314-8e05-f849b23f1e64.png?w=256&q=75&auto=format)
![Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-ac3d1974-a786-426c-bead-c8815403f57a.jpeg?w=256&q=75&auto=format)
![OK](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-52b2ff47-3585-4cb6-b836-b662da7ab453.png?w=256&q=75&auto=format)
![Deplar Farm - Eleven Experience](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-3ab74c7f-e260-45f7-985e-3f708df2705b.png?w=256&q=75&auto=format)
![Landspítali](https://alfredprod.imgix.net/logo/cdc858ae-ca68-46ef-8c0d-8c8c1d343dc8.png?w=256&q=75&auto=format)