Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs

Við leitum að metnaðarfullum og framsæknum stjórnanda til að leiða þjónustu- og þróunarsvið Hafnarfjarðarbæjar. Sviðið er eitt þriggja stoðsviða sveitarfélagsins og ber ábyrgð á stafrænni þróun, upplýsingatæknimálum og rafrænni stjórnsýslu. Undir þjónustu- og þróunarsvið heyra einnig þjónustuver, samskiptamál, menningarmál, ferðamál og söfn sveitarfélagsins. Verkefni sviðsins miða að því að þjónusta, upplýsingar og upplifun sé út frá þörfum og óskum notenda, m.a. með því að nýta stafrænar lausnir. Sviðsstjóri heyrir beint undir bæjarstjóra. Á sviðinu starfa um 45 starfsmenn. Sviðsstjóri ber ábyrgð á rekstri og stýringu sviðsins ásamt þróun stafrænnar þjónustu.

Hafnarfjarðarbær hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á stafræna þróun í rekstri og þjónustu. Hér er um að ræða spennandi starf þar sem viðkomandi gefst tækifæri á að þróa áfram þjónustu leiðandi sveitarfélags inn í nýja tíma þar sem starfræn umbreyting er hagnýtt við innri og ytri þjónustu.

Helstu verkefni:

  • Stefnumótun í þjónustuveitingu og stafrænni þróun
  • Innleiðing þjónustuþróunar og notendamiðaðrar hönnunar
  • Þróun og efling stafrænna þjónustuleiða og lausna
  • Dagleg stjórnun og rekstur, skipulag og umsjón með starfsemi sviðsins
  • Samstarf við önnur svið sveitarfélagsins

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum
  • Haldgóð reynsla af þjónustustýringu og mótun þjónustumarkmiða
  • Reynsla af stafrænni umbreytingu og þekking á stafrænum lausnum
  • Farsæl reynsla af breytingastjórnun og hæfni til að fá aðra með sér til góðra verka
  • Reynsla af samstarfi og stjórnun umbótavinnu þvert á ólíkar deildir
  • Þekking og innsýn í samskiptamál og menningarmál
  • Leiðtogahæfni og auga fyrir tækifærum
  • Framsýni, metnaður, frumkvæði og samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran, ráðgjafi hjá Intellecta ([email protected]) í síma 511-1225 og Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri ([email protected])

Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2025.

Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur13. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar