Skeljungur ehf
Skeljungur ehf
Skeljungur ehf

Svæðisstjóri fyrir Suð-vesturland

Skeljungur óskar eftir að ráða svæðisstjóra fyrir suð-vesturland á rekstrarsviði félagsins með starfstöð við Eyjaslóð 7, Reykjavík. Við leitum að jákvæðum, öflugum og metnaðarfullum aðila sem þrífst í hröðu og síbreytilegu umhverfi. Svæðisstjóri sér meðal annars um stýringu og daglega umsjón með verkefnum starfsmanna dreifingar í Reykjavík ásamt umsjón með afgreiðslustöðum og búnaði.

Hlutverk Skeljungs er að þjóna orkuþörf fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við samfélagið og umhverfið sitt. Fyrirtækið sér um dreifingu eldsneytis, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíum, áburði, hreinsi- og efnavörum og öðrum vörum til fyrirtækja.

Hjá Skeljungi starfar fjölbreytt flóra fólks á öllum aldri. Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind Skeljungs. Við berum hag starfsmanna fyrir brjósti og viljum vera í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi. Í okkar daglega starfi vinnum við eftir kjarnagildunum okkar, við erum jákvæð, við erum tilbúin í breytingar og við erum metnaðarfull.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun verkefna
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
  • Ráðningar, þjálfun og samskipti við bílstjóra
  • Umsjón með ökubílaflota
  • Kostnaðargreining og áætlanagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla af stjórnunarstörfum æskileg
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Auðvelt að koma frá sér upplýsingum í ræðu og riti
  • Góð þjónustulund, skipulagshæfni og tölvukunnátta
  • Meirapróf og ADR- réttindi kostur
Fríðindi í starfi

Niðurgreiddur hádegisverður

Heilsufarsskoðanir

Íþróttastyrkur

Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur14. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Eyjaslóð 7
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar