Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennari - Engidalsskóli

Engidalsskóli óskar eftir að ráða forfallakennara/stundarkennara.

Í Engidalsskóli er áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er að taka fyrstu skrefin í innleiðingu leiðsagnarnáms. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestrarnám og er lestur eina heimanám nemenda.

Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Um er að ræða lítinn og notalegann skóla, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, um 200 nemendur.

Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu á yngsta og/eða miðstigi í forföllum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta og/eða miðstigi
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir skólastjóri, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar 2025

Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur12. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðvangur 4, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar