Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur

Íþróttakennari í 3.-10. bekk og/eða umsjónarkennari í 7.-8. bekk

Valsárskóli óskar eftir kennara í 100% starf sem fyrst og út skólaárið. Starfið felur í sér umsjón og stærðfræðikennslu í 7.–8. bekk, stærðfræðikennslu í 9.–10. bekk og íþróttakennslu í 3.–10. bekk.

Möguleiki er á að skipta starfinu milli tveggja kennara, þannig að annar sinni íþróttakennslu en hinn umsjón og kennslu í 7.–8. bekk ásamt stærðfræðikennslu í 9.–10. bekk. Umsækjendur sem hafa áhuga á öðru hvoru starfssviðinu eru því hvattir til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla og umsjón með námshópi, eftir því sem við á.

  • Að stuðla að velferð, framförum og árangri nemenda í samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.

  • Að starfa í samræmi við stefnu Valsárskóla.

  • Virk þátttaka í samstarfi og þróun skólastarfs.

  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og í samráði við skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu.

  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.

  • Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.

  • Reynsla af kennslu á mið- og unglingastigi er kostur.

  • Þekking á og áhugi á stærðfræði- og/eða íþróttakennslu er kostur.

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Stundvísi og samviskusemi.

  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti.

Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf koma umsækjendur með aðra menntun og reynslu sem nýtist í starfi einnig til greina, í samræmi við gildandi reglur. 

Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur9. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Valsárskóli 152911, 601 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar