Fífusalir
Fífusalir
Fífusalir

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali

Heilsuleikskólinn Fífusalir óskar eftir aðstoðarleikskólastjóra

Heilsuleikskólinn Fífusalir starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Mikið er lagt upp úr hreyfingu og listsköpun innan leikskólans. Unnið er eftir lýðræðislegum kennsluaðferðum og uppgötvunarnámi. Í leikskólanum stunda 106 börn nám og lagt er upp með að allir fái verkefni við hæfi.

Einkunnarorð Fífusala eru virðing - uppgötvun - samvinna

Nánari upplýsingar um Fífusali er hægt að finna á http://fifusalir.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri skólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu skólastarfsins
  • Er faglegur leiðtogi og mentor fyrir aðra starfsmenn
  • Tekur þátt í launavinnslu, skýrslu- og áætlanagerð
  • Tekur þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólanum
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Sérhæfð hæfni á leikskólastigi, sem felur í sér a.m.k. 90 ECTS námseiningar sem tengjast aðalnámskrá leikskóla og menntunarfræðum leikskóla
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunafræða
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
  • Forystuhæfni og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og færi til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Styttri vinnuvika - stytting að hluta til notuð í páskafrí,  tvö vetrarfrí og jólafrí.

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Vekjum athygli á nýjum nálgunum er varða bætt starfsumhverfi barna og kennara í leikskólum Kópavogs. Sjá nánar hér

Auglýsing birt21. október 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Salavegur 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar