

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Vilt þú leiða faglegt barnaverndarstarf og stuðla að öryggi og velferð barna og fjölskyldna?
Barnaverndarþjónusta Reykjanesbæjar leitar að öflugum og framsýnum teymisstjóra sem hefur metnað fyrir faglegu barnaverndarstarfi, umbótum og þróun þjónustu.
Teymisstjóri leiðir barnaverndarteymið og ber ábyrgð á faglegu starfi þess, mannauðsmálum og fjárhagslegum rekstri. Í starfinu felst að styðja og efla starfsfólk, stuðla að þverfaglegri samvinnu og tryggja að þjónusta og verklag samræmist lögum, gæðakröfum og stefnu sveitarfélagsins. Starfið heyrir undir sviðsstjóra velferðarsviðs.
Á velferðarsviði starfar metnaðarfullur hópur stjórnenda og sérfræðinga sem vinnur að velferð íbúa og samfélagsins í heild. Stefna Reykjanesbæjar ber yfirskriftina Í krafti fjölbreytileikans. Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í störfum sínum.
- Leiða barnaverndarteymið, veita starfsfólki faglegan stuðning og stuðla að öflugri liðsheild.
- Bera ábyrgð á faglegri stjórnun og framkvæmd verkefna í samræmi við barnaverndarlög.
- Bera ábyrgð á mannauðsmálum, verkaskiptingu og nýtingu úrræða teymisins.
- Bera ábyrgð á fjárhagslegum rekstri, gerð fjárhags- og starfsáætlana og eftirfylgd þeirra.
- Leiða þróunar-, gæða- og umbótaverkefni og hafa umsjón með innra gæðaeftirliti barnaverndarþjónustunnar.
- Leiða innleiðingu Signs of Safety (Merki um öryggi) í starfsemi og verklag teymisins.
- Efla þverfaglega samvinnu og samstarf við aðra þjónustuaðila.
- Innleiða framtíðarsýn og stefnuáherslur Reykjanesbæjar í starfsemi teymisins.
- Háskólamenntun í félagsráðgjöf eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Framhaldsnám á sviði barnaverndar, farsældar barna og/eða í opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Reynsla og þekking af barnaverndarstarfi nauðsynleg.
- Reynsla eða þekking á opinberri stjórnun og stjórnsýslu kostur.
- Þekking og reynsla af rekstri og fjármálastjórnun er kostur.
- Sterk leiðtogafærni og hæfni til að styðja, hvetja og leiða starfsfólk.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til þverfaglegs samstarfs.
- Þrautseigja og hæfni til að forgangsraða og takast á við krefjandi aðstæður.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Íslenska










